ÍSLENSKA hedinn@kafarinn.is ENGLISH



Heim

Hverjir erum við? Um Okkur

Láttu drauminn rætast! Köfunarnámskeið

Já við seljum líka búnað! Köfunarbúnaður

út um allan heim Utanlandsferðir

Á Fróninu Innanlandsferðir

Gaman að gramsa Tilboðshornið

Það eru áhugaverðir staðir á Íslandi! Köfunarstaðir

Glæsilegur heimur! Myndamappa

Það vantar þig í safnið! Frægðarveggurinn

Hvað dugir kúturinn lengi? Spurningar og svör

Í fréttum er þetta helst Fréttir

Aðrar köfunarsíður Hlekkir

Vertu með! Gestabók

Vertu með! Klúbbur


 


Sorry, your browser doesn't support Java(tm).

Silfra, Þingvellir

GJÖF KAFARANS
Við hjá Kafarinn.is bjóðum uppá gjafabréf í köfun sem getur gilt sem greiðsla fyrir námskeið búnað eða þjónustu. Við gefum út gjafabréf á þá upphæð sem þú kýst. Einnig erum við með allskyns vörur á lager kjósir þú að versla beint. Vinsamlegast hafðu samband við Héðinn í síma 699 3000 eða í hedinn@kafarinn.is

KÖFUNARSKÓLINN KAFARINN.IS rekur NETVERSLUN þar sem þú getur skoðað og verslað köfunarvörur frá POSEIDON og fleiri aðilum, allt frá gleraugum upp í loftpressur. Smelltu hér til að fara inn á verslun.

  Fréttir 15-06-2006   Fyrsta Nitrox pressan á Íslandi
      Köfunarskólinn Kafarinn.is hefur tekið í notkun fyrstu "Nitrox" loftpressuna á Íslandi. Nitrox er heiti yfir loft þar sem hlutfall á milli súrefnis og köfnunarefnis hefur verið breytt, þ.e.a.s. hlutfall súrefnis hækkað úr 21% sem er venjulegt loft upp í allt að 40%. Þetta er gert til að auka botntíma kafara, þ.e.a.s. að kafarinn geti verið lengur í kafi án þess að auka hættu á köfunarveiki. Sem dæmi má nefna að botntími kafara á 18 metra dýpi eykst úr 56 mínútum á lofti upp í 125 mínútur á 36% Nitrox. Það sem er sérstakt við þessa pressu er að þarna er beitt nýrri tækni til að framleiða Nitrox úr venjulegu andrúmslofti með sérstakri síutækni, þannig að engin blöndun á sér stað og ekki er verið að vinna með hreint súrefni. Þetta gerir það að verkum að þetta er öruggt kerfi og ekki þarf súrefnishreinsaða kúta né köfunarlungu.

  Fréttir 15-06-2006   Ferð í Rauða Hafið um miðjan nóvember
      Köfunarskólinn Kafarinn.is er nú búinn að panta snekkju fyrir allt að 24 kafara í nóvember næstkomandi. Um er að ræða vikuferð þar sem farið verður um suðurhluta Rauða Hafsins og kafað allt að fjórum sinnum á dag á frábærum stöðum. Nóvember er hákarlatímabil á þessum slóðum þannig að þetta verður án efa ekki minna ævintýri en ferðin sem við fórum í mars síðastliðinn. Þeir sem áhuga kunna að hafa á því að koma með í þessa ferð eru vinsamlegast beðinr að vera í sambandi við Héðinn í síma 699 3000 eða í hedinn@kafarinn.is
sem fyrst. Síðast fylltum við í bátinn á tveimur vikum! Rauða Hafið er toppurinn í köfun í heiminum.

  Fréttir 15-06-2006   Frábær Rauða Hafs ferð sem farin var í mars
      Jæja þá er maður loksins búinn að finna tíma til að fara í gegnum hluta af myndunum frá Rauða Hafs ferðinni sem Köfunarskólinn Kafarinn.is skipulagði og farin var í mars síðastliðinn. í ferðina fóru 18 íslenskir kafarar og 2 óbreyttir, samtals 20 manns. Óhætt er að segja að þessi ferð hafi verið afar vel heppnuð og að allir hafi skemmt sér hið besta við köfun og fleira. Við vorum á snekkju í sex daga þar sem lífið snerist eingöngu um að kafa, borða og sofa. Ræst var í fyrstu köfun um klukkan 6.30 á morgnana og hoppað nánast beint útí. Eftir þá köfun var svo tilbúinn lúxus morgunverður, en allt fæði um borð var til fyrirmyndar. Í boði voru fjórar kafanir á dag og þrjár máltíðir, auk snarls sem alltaf lá frammi. Þannig að á milli kafana var brugðið á leik, legið í sólbaði eða skriðið í koju, bara kóngalíf. Til gamans má geta að í áhöfn voru 13 manns til að gera hópnum lífið létt. Eftir sex daga á sjó var svo síðustu nóttinni eytt á hóteli í Sharm el Sheikh þar sem farið var í verslanir, fjórhjólaferð, úlfaldareið að ógleymdu pöpparölti. Endilega kíkið á myndir frá ferðinni hér

  Fréttir 21-12-2005   Víkingasveitin velur Poseidon
      Sérsveit ríkislögreglustjórans, Víkingasveitin á Íslandi hefur fest kaup á Poseidon köfunarbúnaði hjá Kafarinn.is og skipar sér þar með í sveit með ótal sérsveitum lögreglu og herja um allan heim um notkun á Poseidon. Um allstóra pöntun er að ræða þar sem víkingasveitin fékk búnað á alla sína meðlimi og má með sanni segja að eftir þessi kaup sé sveitin all vel búinn búnaðarlega séð og klár í flestan sjó. Myndin hér til hliðar er tekin þegar Héðinn Ólafsson afhendir aðalvarðstjóra sveitarinnar Ásmundi Kr. Ásmundssyni búnaðinn. Köfunarskólinn Kafarinn.is óskar Sérsveit ríkislögreglustjórans innilega til hamingju með nýja búnaðinn.

  Fréttir 27-11-2005   Köfunarskólinn Kafarinn.is einkaumboðsaðili Scubapro á Íslandi
      Núna yfir helgina var í heimsókn hjá okkur umboðsmaður Scubapro Martin Schlotterbeck. Við það tækifæri hélt Martin þjónustunámskeið fyrir kennara skólans Héðinn og Jón Alexander þannig að nú erum við með vottun frá Scubapro upp á að geta þjónustað þeirra vörur. Einnig var við sama tækifæri handsalaður samningur upp á að Kafarinn ehf hafi einkaumboð Scubapro á Íslandi þannig að héðan í frá munum við sjá um sölu og þjónustu fyrir Scubapro. Fljótlega munum við verða með breitt úrval köfunarvara frá Scubapro á lager hjá okkur og ber þar sérstaklega að nefna hinar frábæru Uwatec tölvur og hin stórkostlegu Twin Jet fit, sem þegar eru til á lager.

Hjá okkur eru byrjendanámskeið alltaf í gangi.
þú getur komið inn á námskeið þegar ÞÉR hentar.
Einnig er hægt að taka stórann hluta námskeiðsins í FJARNÁMI.
Endilega vertu bara í sambandi við Héðinn í síma 699 3000 eða í hedinn@kafarinn.is

Gefðu gjafabréf í köfun!
þú getur gefið gjafabréf í prufuköfun, innborgun á köfunarnámskeið eða úttekt á búnaði. Gjöfin fyrir ævintýramanninn/konuna.
Hafðu samband við Héðinn í síma 699 3000 eða í hedinn@kafarinn.is

Viltu læra að kafa?
Þá ertu kominn á réttan stað, því hérna byrjar köfunarferillinn ÞINN. Við erum alltaf að byrja með ný námskeið, allt frá Open Water, upp í Divemaster. Smelltu hér til að fræðast meira um námskeið í köfun. Það sem við erum að bjóða uppá eru námskeið kennd eftir alþjóðastöðlum gefnum út af stærstu Sportköfunarsamtökum heimsins, PADI. Allir sem klára námskeið með fullnægjandi hætti, fá skírteini sem gefið er út af PADI og er þekkt um allan heim og virkar sem alþjóðaskírteini í köfun.

Staðreyndirnar tala
Hérna er hægt að sjá hvað útskrifaðir nemendur segja um námskeiðin hjá okkur. Vinsamlegast smelltu HÉR.

Atvinna í boði
Kafarinn.is er að leita að fólki sem hefur áhuga á að starfa við köfun. Skilyrði er að viðkomandi fái þjálfun hjá okkur, allt frá OPEN WATER, upp í DIVEMASTER sem hann/hún fjármagnar sjálf(ur), en eftir námið er hlutastarf í boði við aðstoð í kennslu og ferðalög innanlands, sem utan. Áhugasamir sendi email á hedinn@kafarinn.is


Kafarinn.is
KÖFUNARBÚÐ


POSEIDON

 Ef þig vantar köfunarbúnað, endilega kíktu í búðina okkar. Þar finnurðu allt sem þú þarft.

 

 

Kafarinn.is
KÖFUNARFERÐIR


UTANLANDS

 Við komum til með að skipuleggja köfunarferðir út um allan heim, kíktu hérna til að sjá hvað er framundan í því.

 

 

Kafarinn.is
KÖFUNARFERÐIR


INNANLANDS

 Við erum að skipuleggja ferðir út um allt land, vinsamlegast kíktu á ferðasíðuna okkar.

 

 

Kafarinn.is
TILBOÐSTORG


KAFARANNA

 Hér getur að líta þau tilboð sem eru í gangi hverju sinni, í búnaði og námskeiðum. Tilboðasíðan.