|
|
Álit nemenda
Ótrúlegt ævintýri frá upphafi til enda
Hnitmiðað og skemmtilegt námskeið, Ég tók Padi Open water námskeið hjá Héðni í Kafarinn.is köfunarskólanum. Það var ótrúlega gaman á þessu námskeiði og náði Héðinn að koma bóklega hlutanum vel frá sér sem sést á ágætum einkunum nemenda hans. Verklegi hlutinn var ótrúlegur og gekk vel þar sem allur búnaður sem nemendur fá að láni á námskeiðinu er nýr og í 100% ásigkomulagi.
Símon Ægir Símonarson, framkv.stjóri
Peninganna virði
Mig hafði lengi langað til þess að læra að kafa en aldrei átt fyrir því. Þegar ég loksins lét verða af því var það hverrar krónu virði. Þarna niðri er allt annar heimur sem er alveg stórkostlegur! Á námskeiðinu sá ég m.a krossfiska, ígulker, litla krabba, sel og ótúlega liti. Héðinn er líka alveg sérlega þolinmóður kennari og öruggur í því sem hann er að gera. Ég get því ekki annað en gefið köfunarskóla hans mín bestu meðmæli.
Snæfríður Ingadóttir, blaðamaður
Samkvæmt bókinni
Ég datt inn á námskeið í mars 2002 hjá Héðni og kláraði Open Water við vetraraðstæður. Sjávarhiti 0°C og skyggni 2 metrar. Allt gekk þetta vel og skipulag og framkvæmd námskeiðsins til fyrirmyndar. Það þýddi ekkert að reyna að fá Héðinn til að fara styttri leiðir í námskeiðinu – allt varð að vera eftir bókinni. Ég er kominn með um 30 kafanir núna og er auðvitað á Advanced námskeiði hjá Héðni. Topp meðmæli frá mér.
Halldór Kvaran, heildsali
Draumur sem rættist
Það var lengi búið að blunda í mér að kafa, loks þegar ég lét verða af því sá ég ekki eftir því. Ég hefði ekki viljað læra annars staðar, Héðinn er samviskusamur og nákvæmur í kennslu auk þess var aðbúnaðurinn frábær, toppgræjur og ávalt skemmtileg stemmning. Ég tók Padi open water diver og Advanced open water diver sem er ómissandi ef maður ætlar að stunda köfun. Síðan ég lærði er ég búin að taka yfir 50 kafanir meðal annars í Silfru, Strýtunni, Standard (skútunni á Akureyri) og mörgum öðrum stöðum sem eru á heimsmælikvarða. Margar af þessum köfunum eru advanced kafanir. Ég mæli því með köfunarskólanum hans Héðins, þetta er eitthvað sem ég sé ekki eftir.
Gísli Steinar Jóhannesson, sölumaður
Lykill að nýjum heimi
Kafarinn.is er alveg topp skóli. Árið 2001 fór ég á Open water námskeið hjá honum Héðni Ólafssyni og tókst það mjög vel, það er farið vel ofan í saumana á allri kennslu bóklegri sem verklegri og öll köfun er gerð með topp búnaði. Að fara að kafa er lykill að nýjum heimi sem er alveg æðislegur. Ég mæli þessum köfunarskóla í alla staði.
Axel Axelsson
Námskeið og búnaður
Eftir að hafa prufað köfun erlendis gat ég ekki beðið með að öðlast réttindi. Ég hafði samband við Héðinn og hann hitti mig strax um kvöldið og kynnti mér námið. Allt námsefni Padi er mjög þægilega sett upp og auðvelt yfirferðar. Þolinmæði Héðins virðist heldur ekki eiga sér nein takmörk sem gerir námið þægilegt og skemmtilegt. Í framhaldi af Padi Open Water námskeiðinu tók ég einnig Advanced Open Water og verslaði allan minn búnað frá Héðni. Héðinn og Kafarinn.is fá mín bestu meðmæli og hvet ég fólk eindregið til að kynna sér þau námskeið sem hann býður upp á.
Magnús Hafliðason, nemi
Kom verulega á óvart þrátt fyrir miklar væntingar.
Ég tók Open water námskeið hjá Héðni í byrjun mars vorið 2002. Mér fannst svolítið skrítið að halda námskeið á þessum árstíma sökum kuldanns en ég ætlaði bara að láta mig hafa það. Það kom mér mest á óvart hvað þetta var hlýtt, enda búnaðurinn sem notaður er á námskeiðinu hannaður fyrir þessar köldu aðstæður. Með þeim búnaði sem til er í dag er köfun fyrir alla. Þessi gamli draumur minn að geta upplifað sjáfarlífverur í sínu eðlilega umhverfi varð að veruleika og hverrar krónu virði. Námskeiðið fær mína bestu einkunn.
Fjölnir Björgvinsson, kerfisfræðingur
Algert ævintýri.
Haustið 2002 skráði ég mig á open water-námskeið hjá köfunarskólanum og uppfyllti með því gamlan draum um að prófa köfun. Ég hafði rekist á frábæra heimasíðu skólans eftir að hafa verið að vafra um á netinu í leit að námskeiðum. Stóðst námskeiðið væntingar mínar og vel það. Ekki er hægt að segja annað en að Héðinn er mjög góður kennari og áræðanlegur í alla staði. Í einu orði sagt var þetta námskeið og það sem maður upplifði á því algert ævintýri.
Karl Magnús karlsson, arkitekt FAÍ
Til að skrá þig á, eða fá upplýsingar um námskeið vinsamlegast hafðu samband við Héðinn í síma 699 3000 eða sendu póst á hedinn@kafarinn.is
|
Kafarinn.is
KÖFUNARBÚÐ

POSEIDON
Ef þig vantar köfunarbúnað, endilega kíktu í
búðina okkar.
Þar finnurðu allt sem þú þarft.
Kafarinn.is
KÖFUNARFERÐIR

UTANLANDS
Við komum til með að skipuleggja köfunarferðir
út um allan heim, kíktu hérna til að sjá hvað er framundan í því.
Kafarinn.is
KÖFUNARFERÐIR

INNANLANDS
Við erum að skipuleggja ferðir út um allt land, vinsamlegast kíktu á
ferðasíðuna okkar.
Kafarinn.is
TILBOÐSTORG

KAFARANNA
Hér getur að líta þau tilboð sem eru í gangi hverju sinni, í búnaði og námskeiðum.
Tilboðasíðan.
|